Skilmálar og skilyrði

Skilmálar

NETVERSLUN

1. SKILMÁLAR
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu ASTRA ehf. Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og við tryggjum viðskiptavinum okkar örugg viðskipti á netinu.

2. SKILGREININGAR
Seljandi er ASTRA ehf ehf. kt. 580496-2459. Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára.

3. SKILARÉTTUR
Hægt er að skila vörum ef varan er óskemmd og óopnuð í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgir með. Ef um gallaða vöru er að ræða skal hafa samband við ASTRA. Almennur skilafrestur á vörum eru 30 dagar. Við skil er boðið uppá aðra vöru eða inneign. Vörur skulu vera með órofnu innsigli og í sinni upprunalegu mynd. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Ef vara reynist gölluð greiðir ASTRA ehf fyrir endursendingu vörunnar.

4. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum án virðisaukaskatts sem reiknast ofan á í körfu 24%. Verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og áskilur ASTRA ehf sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturkræfar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

Við upplýsum viðskiptavini okkar um ef vara sem hefur verið pöntuð er ekki til á lager tímabundið og bjóðum uppá að hún verði send þegar hún verður aftur fáanleg. Ef vara er ekki til á lager til lengri tíma mun ASTRA ehf endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla farið fram.

5. PERSÓNUVERND
Seljandi fer með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til að klára viðkomandi viðskipti. Upplýsingar um greiðslukortanúmer koma ekki til seljanda heldur eru á afmörkuðu vefsvæði viðkomandi greiðsluþjónustu.

6. SENDINGARMÖGULEIKAR OG KOSTNAÐUR
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.

7. ÖRYGGI
Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitors.

8. GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Í netverslun ASTRA er boðið uppá að greiða með öllum helstu greiðslukortum , Paypal og bankamillifærslum. Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.

9. MILLIFÆRSLUR
Ef valið er að greiða með millifærslu er óskað eftir því að staðfestingu á greiðslu verði send á netfangið: sala@astra.is

BANKAREIKINGUR:

Banka uppl: 0338-26-341431
Kennitala: 580496-2459

Ef pöntun er ekki greidd innan tveggja daga telst pöntun ógild.

10. LÖG UM VARNARÞING
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur

VEFHÝSING VPS NETAFRITUN

Áskriftar- og þjónustuskilmálar ASTRA ehf.

  1. Gildissvið og samningsgerð

Þessir skilmálar gilda um áskriftar-, hýsingar- og rekstrarþjónustu sem ASTRA ehf., kt. 580496-2459, veitir viðskiptavinum sínum, þar á meðal vefhýsingu, VPS-hýsingu, vélbúnaðarhýsingu, netþjónaþjónustu, 3CX símaþjónustu, netafritun og aðra sambærilega þjónustu.

Samningur um þjónustu telst kominn á þegar viðskiptavinur hefur samþykkt tilboð, samning eða þjónustupöntun ASTRA með skriflegum eða rafrænum hætti. Samþykki í tölvupósti telst skriflegt samþykki.

Þessir skilmálar gilda nema annað sé sérstaklega tekið fram í samþykktu tilboði, þjónustusamningi eða sérskilmálum. Ef misræmi er á milli almennra skilmála og sérsamnings gilda ákvæði sérsamningsins.

  1. Áskriftir, gildistími og endurnýjun

Áskriftarþjónusta er veitt samkvæmt þeim þjónustupakka, verði og skilmálum sem viðskiptavinur hefur samþykkt.
Áskriftir geta verið mánaðarlegar, árlegar eða með öðrum samningsbundnum greiðslutímabilum.
Áskrift endurnýjast sjálfkrafa fyrir næsta greiðslutímabil nema henni sé sagt upp með þeim hætti og innan þess frests sem kveðið er á um í þessum skilmálum eða sérsamningi.
Ef sérstaklega hefur verið samið um binditíma skal hann koma fram í tilboði eða samningi. Ef binditími er ekki sérstaklega tilgreindur gildir ekki sérstakur lágmarksbinditími um áskriftina, með fyrirvara um lögbundin réttindi og skuldbindingar vegna þjónustu þriðja aðila.

  1. Uppsögn áskriftarþjónustu

Uppsagnarfrestur fyrir ótímabundna áskriftarþjónustu ASTRA er einn mánuður og miðast við mánaðamót.
Uppsögn skal berast ASTRA skriflega í tölvupósti á astra@astra.is eða annað netfang sem ASTRA hefur sérstaklega tilgreint fyrir móttöku uppsagna.

Uppsögn skal senda frá netfangi sem skráð er hjá ASTRA fyrir viðskiptavin eða þjónustu, eða frá netfangi viðurkennds tengiliðar viðskiptavinar. ASTRA getur óskað eftir frekari staðfestingu á heimild þess sem segir upp þjónustu ef ástæða er til.

Í uppsögn skal koma skýrt fram:

  • Nafn viðskiptavinar og kennitala eða önnur auðkenni.
  • Hvaða þjónustu er verið að segja upp.
  • Ósk um lokadag þjónustu, ef við á.

Uppsögn telst móttekin þegar hún berst á tilgreint netfang ASTRA. ASTRA staðfestir móttöku uppsagnar og fyrirhugaðan lokadag þjónustu.
Uppsagnarfrestur hefst fyrsta dag næsta almanaksmánaðar eftir að uppsögn berst. Þjónustu lýkur við lok þess mánaðar.

Dæmi: Uppsögn berst ASTRA 6. mars. Uppsagnarfrestur hefst 1. apríl og þjónustu lýkur 30. apríl.

Þjónusta helst virk á uppsagnarfresti og greiðsluskylda viðskiptavinar gildir til loka hans, nema annað sé sérstaklega samið.
Uppsögn á einni þjónustu tekur ekki sjálfkrafa til annarra þjónustuliða eða áskrifta viðskiptavinar.

  1. Binditími og sérsamningar

Þegar viðskiptavinur hefur samþykkt binditíma, sérútbúna þjónustu, vélbúnað eða skuldbindingu vegna leyfa eða þjónustu þriðja aðila gilda ákvæði viðkomandi samnings um gildistíma, uppsögn og greiðsluskyldu.
Uppsögn áður en binditíma lýkur leysir viðskiptavin ekki sjálfkrafa undan greiðslum sem hann hefur skuldbundið sig til að greiða samkvæmt samningi.
ASTRA getur samþykkt að þjónustu ljúki fyrr gegn uppgjöri eða samkvæmt sérstöku samkomulagi.

  1. Greiðslur og vanskil

Reikningar ASTRA skulu greiddir á gjalddaga samkvæmt reikningi eða samningi.
Ef greiðsla berst ekki á eindaga er ASTRA heimilt að senda greiðsluáskorun og innheimta dráttarvexti og kostnað samkvæmt gildandi lögum.
Ef vanskil vara getur ASTRA, að undangenginni skriflegri tilkynningu og hæfilegum fresti til úrbóta, takmarkað eða lokað fyrir þjónustu.
Við alvarleg eða ítrekuð vanskil, eða þegar öryggi kerfa ASTRA eða annarra viðskiptavina er stefnt í hættu, getur ASTRA gripið til tafarlausra ráðstafana eftir því sem nauðsynlegt er.
Lokun þjónustu vegna vanskila jafngildir ekki uppsögn þjónustu af hálfu viðskiptavinar og fellir ekki niður greiðsluskyldu vegna þjónustu sem þegar hefur verið veitt eða samningsbundinna skuldbindinga.
Kostnaður vegna innheimtu og annarra lögmætra aðgerða vegna vanskila fellur á viðskiptavin eftir því sem lög heimila.

  1. Verð og verðbreytingar

Verð þjónustu kemur fram í samþykktu tilboði, samningi eða verðskrá ASTRA.

ASTRA áskilur sér rétt til að breyta verði þjónustu vegna breytinga á kostnaði, gjaldskrám birgja, leyfum, gjöldum eða öðrum rekstrarforsendum.
Verðbreytingar á áframhaldandi áskrift skulu tilkynntar viðskiptavini með að lágmarki 30 daga fyrirvara áður en þær taka gildi, nema annað sé heimilt samkvæmt lögum eða samningi.

Ef viðskiptavinur samþykkir ekki verðbreytingu getur hann sagt upp viðkomandi þjónustu áður en breytingin tekur gildi, með fyrirvara um gildandi binditíma og lögbundin réttindi.

  1. Ábyrgð viðskiptavinar

Viðskiptavinur ber ábyrgð á:

  • Að upplýsingar sem hann veitir ASTRA séu réttar og uppfærðar.
  • Að notkun þjónustu sé í samræmi við lög og þessa skilmála.
  • Að tryggja að hann hafi réttindi til gagna, hugbúnaðar og efnis sem hann geymir eða notar í þjónustu ASTRA.
  • Að gæta að aðgangsheimildum og lykilorðum.
  • Að tilkynna ASTRA um breytingar á tengiliðum og netföngum.
  • Að tryggja að mikilvæg gögn séu varðveitt með viðeigandi hætti.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á notkun þjónustu í gegnum aðgang sinn, nema annað leiði af lögum eða samningi.

  1. Hýsingarþjónusta og ásættanleg notkun

Vefhýsing, VPS og netþjónaþjónusta ASTRA skal notuð í samræmi við lög, góða viðskiptahætti og þessa skilmála.

Óheimilt er að nota þjónustuna til:

  • Dreifingar á ólöglegu efni.
  • Óheimillar dreifingar höfundarréttarvarins efnis.
  • Fjöldasendinga tölvupósts eða ruslpósts.
  • Árása á tölvukerfi, net eða einstaklinga.
  • Námugraftar rafmynta án skriflegs samþykkis ASTRA.
  • Eigendur vefsvæða skulu uppfæra vefumsjónarkerfi sín reglulega
  • Aðgerða sem stefna öryggi eða rekstri ASTRA eða annarra viðskiptavina í hættu.

ASTRA getur takmarkað eða lokað þjónustu ef notkun veldur óeðlilegu álagi, öryggisáhættu eða brotum á skilmálum.

ASTRA skal, eftir því sem aðstæður leyfa, upplýsa viðskiptavin um ástæður lokunar og veita honum tækifæri til úrbóta. Tafarlaus lokun getur þó verið nauðsynleg vegna öryggis, lagaskyldu eða verulegrar hættu á tjóni.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á uppfærslu og öryggi hugbúnaðar sem hann rekur sjálfur á hýsingarþjónustu ASTRA, nema annað sé sérstaklega samið.

Vefhýsing er deild hýsing (shared hosting)
Sem þýðir að margir deila sín á milli getu netþjóns. ASTRA ehf er heimilt að loka eða takmarka virkni vefsvæðis sem að einhverjum sökum veldur óvenjulega miklu álagi. Öll mál eru skoðuð sérstaklega og ástæður kannaðar og tekin ákvörðun um framhald.
Meti sérfræðingar ASTRA það svo að umferð á vefsvæði fari umfram það sem eðlilegt getur talist eða álag á netþjón sé yfir eðlilegum mörkum skal endurskoða þjónustuna og setja upp viðeigandi þjónustupakka.

  1. Afritun og gögn

Afritun er aðeins innifalin í þjónustu að því marki sem sérstaklega kemur fram í þjónustulýsingu eða samningi.
Viðskiptavinur skal kynna sér umfang afritunar, varðveislutíma og endurheimtarmöguleika.
Afritunarþjónusta kemur ekki í stað ábyrgðar viðskiptavinar á að tryggja að hann hafi aðgang að mikilvægum gögnum og geti endurheimt þau eftir því sem eðli þjónustunnar krefst.
ASTRA ábyrgist ekki að hægt sé að endurheimta gögn í öllum tilvikum, nema sérstakt þjónustustig eða ábyrgð sé samið um.

  1. Hardware hýsing og sérútbúin þjónusta

Þegar þjónusta felur í sér sérútbúinn vélbúnað, sérstaka netþjóna, búnað eða aðra fjárfestingu fyrir viðskiptavin skal gildistími, uppsagnarfrestur, greiðsluskylda og eignarhald koma fram í sérstöku tilboði eða samningi.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á kostnaði sem ASTRA hefur skuldbundið sig til gagnvart birgjum eða þriðja aðila vegna slíkrar þjónustu, samkvæmt samþykktum samningi.

  1. 3CX og símaþjónusta

3CX þjónusta ASTRA getur falið í sér rekstur símkerfis, leyfi, uppsetningu, viðhald, símanúmer, tengingar og þjónustu frá þriðja aðila.
Um þjónustuna gilda einnig viðeigandi skilmálar 3CX, fjarskiptaþjónustuaðila og annarra birgja, eftir því sem við á.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að tryggja að notkun símaþjónustu sé lögleg og að aðgangsheimildir séu réttilega úthlutaðar.
Uppsögn 3CX þjónustu felur ekki sjálfkrafa í sér uppsögn símanúmera, tenginga eða annarrar þjónustu sem er veitt af þriðja aðila. Slík þjónusta skal segja upp sérstaklega ef hún er ekki innifalin í sama samningi.

Við lok þjónustu skal viðskiptavinur óska eftir flutningi símanúmera, gagna eða stillinga áður en þjónusta er lögð niður.

  1. Lok þjónustu og gagnaafhending

Við lok þjónustu ber viðskiptavinur ábyrgð á að óska eftir afhendingu gagna, flutningi þjónustu eða öðrum aðgerðum sem nauðsynlegar eru áður en þjónustu lýkur.
ASTRA getur aðstoðað við gagnaafhendingu eða flutning þjónustu samkvæmt gildandi gjaldskrá eða sérstöku samkomulagi.
Eftir lok þjónustu er ASTRA heimilt að eyða gögnum viðskiptavinar úr virkum kerfum sínum eftir hæfilegan frest, nema lög, samningur eða sérstakt samkomulag kveði á um annað.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að tryggja að hann hafi tekið við nauðsynlegum gögnum áður en þau eru fjarlægð.
Gögnum í afritunarkerfum kann að vera eytt samkvæmt viðeigandi varðveislutíma og verklagi afritunarþjónustunnar.

  1. Truflanir og þjónusta þriðja aðila

ASTRA leitast við að veita örugga og áreiðanlega þjónustu og sinnir  viðhaldi eftir þörfum.
Þjónusta getur orðið fyrir truflunum vegna viðhalds, bilana, nettruflana, þjónustu þriðja aðila eða annarra aðstæðna sem ASTRA hefur ekki fulla stjórn á.

ASTRA ber ekki ábyrgð á truflunum sem stafa af fjarskiptanetum, símafyrirtækjum, hugbúnaðarframleiðendum eða öðrum þjónustuaðilum utan beinnar stjórnunar ASTRA, nema ábyrgð leiði af lögum eða samningi.

  1. Takmörkun ábyrgðar

ASTRA leitast við að veita þjónustu eftir bestu faglegu getu. Engin þjónusta er þó tryggð með fullkomnu rekstraröryggi eða án truflana nema sérstaklega sé samið um slíkt þjónustustig.
ASTRA ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem rekstrartapi, tapaðri sölu, tekjumissi eða afleiddum skaða, nema ábyrgð leiði af ófrávíkjanlegum lögum eða tjón sé afleiðing ásetnings eða stórfellds gáleysis.
Viðskiptavinur er ábyrgur að öllu leyti fyrir sínum gögnum og er hvattur til að taka afrit af sínum gögnum og geyma utan kerfa ASTRA.

Ákvæði þessa kafla takmarka ekki lögbundin réttindi neytenda eða aðra ábyrgð sem ekki er heimilt að takmarka samkvæmt lögum.

  1. Breytingar á skilmálum

ASTRA áskilur sér rétt til að uppfæra þessa skilmála.

Verulegar breytingar á skilmálum sem hafa áhrif á áframhaldandi áskriftarþjónustu verða tilkynntar viðskiptavinum með hæfilegum fyrirvara.
Ef breytingar fela í sér verulega skerðingu á þjónustu eða réttindum viðskiptavinar skal viðskiptavini, eftir því sem lög kveða á um, gefinn kostur á að segja upp þjónustu áður en breytingar taka gildi.

  1. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög.

Ágreining vegna þjónustu ASTRA skal leitast við að leysa með samkomulagi. Ef ekki tekst að leysa ágreining skal hann rekinn fyrir þar til bærum íslenskum dómstólum, með fyrirvara um lögbundin réttindi neytenda.

Vafrakökur

Vafrakökur eru litlar textaskrár sem geymdar eru á vafra notenda. Við notum vafrakökur á vefsíðu okkar til að auðkenna notendur. Notkun á vafrakökum gerir okkur því kleift að veita notendum betri upplifun og stuðla að frekari þróun vefsíðunnar.

Vafrakökur hafa ólíkan tilgang en sumar þeirra eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsvæða. Þær kökur eru ekki háðar samþykki notenda heldur byggir notkun þeirra á lögmætum hagsmunum okkar, sem felast í því að geta veitt góða upplifun á vefsíðu okkar og til að stuðla að frekari þróun hennar.

Aðrar vafrakökur eru notaðar t.d. vegna greininga á vefsvæðum, fyrir stillingar á vefsvæðum og markaðssetningu. Notendur þurfa að veita samþykki fyrir notkun á þeim vafrakökum. Vafrakökur hafa einnig ólíkan gildistíma. Ákveðnar vafrakökur virka einungis á meðan vafri er opinn og er eytt þegar honum er lokað en aðrar vafrakökur hafa lengri gildistíma.

Að slökkva á vafrakökum
Þeir sem vilja losa sig við vafrakökur geta gert það í stillingum á þeim vafra sem notast er við. Sá sem heimsækir vefinn fær val um að samþykkja eða hafna vafrakökum, tekið skal fram að hafna eða eyða vafrakökum getur haft afgerandi áhrif á notendaupplifun og stillingar á tengdum vefsvæðum.

Hvernig eyði ég vafrakökum?

Þú getur eytt öllum þeim vafrakökum sem þinn vafri geymir. Leiðbeiningar um það fyrir Internet Explorer eru hér og Google Chrome hér

Nánari upplýsingar um vafrakökur má t.d. finna á www.allaboutcookies.org

Netsamtal

Við notum svarbox (live chat) frá 3CX á vefsíðunni okkar til að aðstoða viðskiptavini í rauntíma. Samskiptin eru sjálfkrafa skráð og geymd á öruggum netþjóni ASTRA.
Með því að hefja netsamtalið deilir þú upplýsingum með viðmælandanum þ.m.t nafn, netfang og öll samskiptin sjálf. Þessar upplýsingar verða vistaðar í 120 daga og verður ekki deilt með öðrum undir neinum kringumstæðum. Kjósir þú að þeim verði eytt strax
hafðu þá samband og við gerum það.

ASTRA ehf.
Kennitala: 580496-2459
Fákafen 9, 108 Reykjavík
Sími: 414-3100
Netfang: astra@astra.is
Vefsíða: www.astra.is

Skráning á póstlista

Upplýsingarnar verða einungis nýttar til að senda þér tilboð ásamt upplýsingum um vörur og þjónustu ASTRA.  Við sendum hvorki ruslpósta né látum þriðja aðila upplýsingar í té.

Takk fyrir að skrá þig á póstlistann okkar!

0
0
Karfa
Engar vörur í körfuFara á forsíðu